Lögbann á flugumferðarstjóra

    Ríkistjórninn hlýtur að gefa út bráðabirgðalög og leggja lögbann á boðaðar aðgerðir flugumferðastjóra,  öllum hlítur að vera ljóst er flugfélög og ferðaþjónusta berjast í bökkum við að ná endum saman, og svo maður tali nú ekki um gjaldeyrisskorinn, þá á ekki að líða að einstakir forréttindahópar geti skaðað samfélagið okkar í krafti félagavalds.   Mín skoðun er sú að annaðhvort eru menn í verkfalli og leggja því alveg niður vinnu, eða segja upp og fara til starfa þar sem kunnátta þeirra er metinn að verðleikum.   Það hlítur að vera til umhugsunar að leita eftir erlendum starfsmönnu til fugumferðarstjórnar,  er geta sætt sig við þau kjör er hér eru í boði.
mbl.is Mikil röskun á flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

veistu, er alveg sammála þér, á bókað flug núna í júlí og þurfti að kaupa dýrt flug frá Boston til Atlanta, ég fæ það hvergi bætt ef ég missi af tengifluginu mínu. ég geri mér grein fyrir því að þetta eru sprenglærðir menn að vinna mjög mikilvægt starf, en þeir vinna 4 tíma á dag, 2 tíma í einu og eru að mér finnst á frekar háum launum eins og er. annaðhvort að semja við þá ASAP eða þá að fara þá leið sem mér þykir miður og það er að setja lögbann á þetta. við erum eyja, ef ekki er hægt að fljúga þá erum við algerlega innlyksa hér....

Íris (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 18:34

2 identicon

Það fást sennilega ekki margir útlendingar hingað til vinnu.  Það vantar um 2000 flugumferðarstjóra bara í Þýskalandi næstu 10 árin.  Allsstaðar í Evrópu er skortur á flugumferðarstjórum þrátt fyrir að laun þar eru um 25-45% hærri og engin yfirvinna liðin.  Ég er sammála því að þeir eiga að segja upp og fá sér vinnu erlendis þar sem kjörin og vinnutíminn er mun betri

Yfirvinna flugumferðarstjóra hér á landi er mjög mikil. 

Myndir þú sætta þig við að flugstjórinn á vélinni sem þú værir að fara í frí með væri að koma beint úr 7-8 tíma Ameríkuflugi og væri að fara með þig áfram í 3-4 tíma flug til suður Evrópu? 

Myndir þú þá sætta þig við það að flugumferðarstjórinn (sem reyndar kallar aldrei aftur í vélina og segir okkur frá því hvernig aðskilnaði verður háttað í þessu flugi) væri búinn að vinna langan vinnudag og jafnvel marga daga í röð og á síðan að tryggja öryggi þitt og meðfarþega þinna gagnvart annari flugumferð? 

Eina vandamálið er að ef þeir segja allir upp og fá sér vinnu erlendis þá verða þeir að sigla

Matti (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 18:48

3 identicon

Hvaðan hefur þú þessar upplýsingar, Íris, um hvernig vinnu flugumferðarstjóra er háttað? 4 tíma vinnudagur? Ég veit ekki betur en að þeir vinni allt að 12 tíma vaktir, en aldrei svo stuttar sem 4 tíma! Það kæmi mér ekki á óvart að vanþekking þín næði líka til kjara þeirra, þú ættir að kynna þér málið áður en þú tjáir þig um það.

p.s. þetta eru líka sprenglærðar KONUR sem vinna við þetta..

Sólveig (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 19:47

4 Smámynd: Jahá

Jæja

Ég sé fram á að fjölskylduferðin mín til Bandaríkjanna falli niður, ferð sem við söfnuðum fyrir í hálft ár og keyptum í byrjun árs.  Gífurleg vonbrigði munu verða á heimilinu þar sem þetta er eflaust eina tækifærið í mörg ár fyrir okkur að komast öll saman að hitta ættingja þarna úti.  Börnin búin að telja niður dagana frá upphafi.  Ég vona af öllu mínu hjarta að þetta verði ekki raunin. 

Jahá, 23.6.2008 kl. 20:10

5 Smámynd: haraldurhar

    Matti ég get upplýst þig um það að mér er hjartalega sama þótt flugstjóri sem er að koma úr Amríkuflugi, flygi með mig og mína yfir hafið  og sé reyndar ekkert athugavert við að menn vinni 10 til 12 ´tíma,  meira er mér hugsað til að vihald og eftirlit með fluvélinni er ég flý með sé gott, en í þeim þrengingum er flugfélög eiga nú við um þessar mundir, er hætt við að það komi niður á allmennu viðhaldi.   Ég sætti jafnfram við það að flugumferðastjóri sé búinn að vinna 8 til 12 samfellt, ég hef reyndar aldrei skilið þessar ströngu reglur varðandi hvíldartíma starfsmanna er vinna við flug, ekki myndi nokkrum manni detta í hug að takmarka vinnutíma á þennan hátt til sjós, svo ekki sé nu minnst á starfsfólk spítalanna er virðist vinna allt upp í 36 samfell, ekki vildi ég leggjast undir hnífinn hjá skurðlæknir er hefur staðið samfellt í 36 tíma.

    Vitaskuld eiga flugumferðarstjórar selja sína vinnu til þess er best borgar, en ekki stunda skæruverkföll er valda ómældu tjóni fyrir land og þjóð. Eg vil bara láta á það reyna hvort ekki tekst að manna flugumferðarstjórn með erlendu vinnuafli, er sætta sig við þau kjör er hér eru í boði, og það kannsi jafnvel fyrir lægri laun. Það hlítur að vera fjoldi menntaðra flugumferðastjóra í Austu Evrópu,er gjarnan vildu starfa hér á landi. 

   Stefán Viðar það er ömurlegt að hugsa til þess að börnin er búinn eru að telja niður daganna í fleiri mánuði, séu rænd ferðinni sinni af óbilgjörnum hagsmunaseggjum

haraldurhar, 23.6.2008 kl. 22:53

6 identicon

  Matti, vinnuskylda flugumferðastjóra er ekki mikil, 15-16 sinnum 10 tíma vaktir í mánuði.  Það hlýtur að vera völ um það hvort menn vinni meiri vinnu en vinnuskyldan segir um.  Það hlýtur þá vera lausn málsins að ráða/þjálfa fleiri flugumferðastjóra til að minnka yfirvinnuna sem er í boði.  Vinnan er vissulega vaktavinna á öllum tímum sólahringsins.   Vinnuálagið er mismikið á sólahringnum og skiptast menn  á hvíld og vinnusetu við stjórn flugumferðar. 

  Það sem er þó merkilegt að vinnustöðvuninn fyrstu 2 daganna er á þeim tíma sem kemur verst fyrir íslenska farþega og flugrekstraraðila frá Keflavík.  Þar sem henni verður eingöngu beint gegn flugi frá Keflavík og Reykjavík á morgnana frá 07-11  en ekki úthafsumferð.  Þessi ákvörðun er bara snjöll í því ljósi að þá skapast pressa án þess að ergja aðra flugrekstraraðila sem fljúga yfir hafið milli evrópu og USA. 

Það verður gaman að sjá hvað gerist á næstunni.  

Gunnar (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 02:22

7 identicon

Haraldurhar: "Það hlítur að vera fjoldi menntaðra flugumferðastjóra í Austu Evrópu,er gjarnan vildu starfa hér á landi. "

Uhhh... nei!?!

Það var reynt í Noregi fyrir 2-3 árum, þá var mjög svipuð deila og hér, nýbúið að einkavæða og reyndar gengið lengra þar sem slatta af eldri (lesist: hærra launuðum) flugumferðarstjórum var sagt upp. Í kjölfarið sögðu nánast allir flugumferðarstjórarnir upp (250 manns) og Avinor (norsku "Flugstoðir") sögðu að það skipti engu máli þeir myndu bara sækja nýja til Austu-Evrópu. Það er skemmst frá því að segja að þessi tilraun mistókst hrapallega og aðeins 3 erlendir flugumferðarstjórar sóttu um (það er greinilega skortur á flugumferðarstjórum þar eins og annars staðar). Í kjölfarið kom Avinor með skottið á milli lappanna og neyddist til að kaupa liðið tilbaka með 40% launahækkun. Restin af Skandinavíu fylgdi í kjölfarið og nú er svo komið að laun flugumferðarstjóra á Íslandi eru þau lægstu á norðurlöndum.

Af hverju er það ósanngjarnt af íslenskum flugumferðarstjórum að fara fram á sömu laun og aðrir í svipuðum og/eða sömu störfum?

Jonni (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 08:57

8 Smámynd: Jahá

Ég undirbjó drengina mína í morgun við því að flugið gæti farið úr skorðum og/eða farið yrði fellt niður.  Yngri strákurinn minn sagði hátt og snjallt:  "Mér finnst þeir vera frekjur.  Ég er stundum smá frekur, en ekki SVOOOOONA mikið."

Ég hafði ekkert við þetta að bæta.

Mig grunar að almenningsálit gagnvart þessum aðgerðum og samúð þeirra á "vondri aðstöðu" flugumferðarstjóra er hugsanlega í algjöru lágmarki.  Að notfæra sér sérstöðu sína gagnvart almenningi og nánast halda þeim í gíslingu á jörðu niðri vekur einungis upp neikvæða umræðu gagnvart flugumferðarstjórum.

Það er óskandi að það verði samið við þá áður en þessar aðgerðir fara í gang.  Það yrði einmitt besta lausnin, á báða bóga

Jahá, 24.6.2008 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband