Útgjaldaaukning hjá Útlagastjórninni.

    Þessi leiðrétting á genginu á ekki að koma neinum á óvart og henni er ekki lokið.  Áhættufjárfestar eru hættir að trade hana, og sjá að ísl. okurvextirnir nægja ekki lengur til að halda henni rangt skráðri.  Það sem veldur mér mestum áhyggjum að kostnaðarauki vegna útlagastjórnarinnar aukast gríðalega, og gæti svo farið ef fram heldur sem horfir að ráðherrar okkar neyðist til að hafa meiri viðveru hér á landi.  Davíð hlítur að hækka stýrivexti upp í 30% í von um að einhverir aular álpist til að taka stöðu með krónunni.
mbl.is Gengi krónunnar aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hagbarður

Við eigum að hampa Blöndalnum meira. Hann er ígildi margra hagfræðinga (skv. kenningunni um þingsetu og áunna reynslu af efnahagsmálum) og gæti eflaust leitt okkur út úr þessum ógöngum og stutt við krónuna.

Það vekur undrun mína að það skuli ekki vera komnir fram sýnilegir brestir hjá stjórn Seðlabankans m.v. þá stöðu sem við höfum komið okkur í. En kannski nær sætleiki og sæluvíma hjónabandsins, sem Össur lýsir svo fjálglega, einnig til "tinndátana" sem þar sitja í stjórn í umboði Samfylkingarinnar.

Hagbarður, 18.6.2008 kl. 18:00

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Þetta vandamál er auðvitað að litlu leyti þessari ríkisstjórn að kenna, heldur þeirri fyrr og undan þeirri ábyrgð kemst t.d. Framsóknarflokkurinn ekki frekar en Sjálfstæðisflokkurinn. Núverandi ríkisstjórn ber einungis ábyrgð á aðgerðaleysi sínu, sem er út af fyrir sig nógu stór sök.

Ég er ekki þeirrar skoðunar að það þurfi að skipta um ríkisstjórn, enda aldrei nauðsynlegra en núna að hafa sterkan þingmeirihluta. Hvaða sveiflur heldurðu að væru ef ríkisstjórnin félli. Þá myndum við, sem eldri erum en 35-40 ára, nú fyrst upplifa „Déjà vu” tilfinninguna mjög sterkt!

Ég er hins vegar sammála um að það þarf að grípa til einhverra ráðstafana.

Guðbjörn Guðbjörnsson, 18.6.2008 kl. 21:01

3 Smámynd: haraldurhar

   Tek undir það Hagbarður að formaður stjórnar Seðlabankans, Halldór Blöndal, sem hlítur að hafa yfirburðaþekkingu á stjórn peningamála, og sá hæfasti er stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinar fann til að gegna þessari ábyrðarstöðu, sé aldrei í fjölmiðlum né hafi gefið út neinar tilkynningar um stöðu ísl. kr. og svo maður tali nú ekki um horfur komandi mánaða. hvernig hann ætlar að bregðast við.   Eg er næsta viss um ef Haldór formaður stigi fram á sviðið og gæfi alþjóð hverning hann hyggst taka á aðsteðjandi vanda, myndi markaðurinn hér heima og ekki síst erlendis leiða til styrkingu ísl. kr.

   Guðbjörn ekki ætla ég að draga úr ábyrgð fyrrverandi ríkistjórnar, né próventukerlingarinnar henni Framsókn á núverandi ástandi.  Hjá því verður ekki komist að núverandi ríkistjórn virðist vera algjörlega getulaus til að stjórna landinu, og það sem verra er algjörlega úrræðalaus.   Hver hefði trúað því að formaður Samfylkingarinnar hefði stutt og komið á laggirnar útgjöldum uppá minnsta kosti 1350 milljónir til loftvarna, ekki skorið niður útgjöld til utaríkiþj. er nemur um 12 milljörðum á ári.  Svikið að fella út eftirlauna rugl æðstu ráðamanna þjóðarinnar, ekki haft dug til að fara að úrskurði Mannréttindanefnar, tekið við hlutverki Framsóknar að kokgleypa allt og einugis ríghalda í stjórnarstólanna.

    Samfylkingin hefur ekki einu sinni haft burði til þess að hækka skattleysismörkinn svo þau nægði fyrir lámarksframfærslu, stór hluti þingmanna samfylkingarinnar hefur aldrei verið í annari vinnu en hjá því opinbera.

   Einfaldasta ráðstöfuninn til að koma efnahagsástandinu í gang væri að úthluta aflaheimildum eða sóknardögum á öll sjávarþorp á íslandi, sem úthlutuðu til heimamanna.  Það eru tekjur og gjaldeyrir er koma hjólum atvinnulífsins í gang, en ekki aukinn atvinnubótavinna hjá ríki og bæ, eins og mála rafveituskúinn oft á ári.   Eg vona maður lifi aftur þá tíma að fólk líti upp til þess fólks er skapar tekjurnar, og aflaskipstjórar fái aftur notið sín

haraldurhar, 19.6.2008 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband