Guðlaugur Þór feykist með vindinum eins og ætið.

    Guðlaugur Þór gefur yfrlýsingu um að ekki sé inn í myndinni að fresta, eða slá af byggingu hatæknisjúkrahús, þessi yfirlýsing hans er eins og margar fleiri er frá honum hafa komið ekki á hans valdi að gefa út, og dettur nokkrum manni í hug að hann leggi ráðherradóm sinn undir að bygging spítalans verði ekki frestað.  Það eru ekki nema nokkrar vikur í að hann lagði niður skottið í deilu Landspítalans og hjúkrunarfræðinga.   Ekki má nú gleyma aðkomu hans að stofnun Rei, og hve máttlaus hann var að verja það félag er á reyndi. 

   Gunnar Svavarsson veit að það þarf tekjur á móti útgjöldum í rekstri, en það er meiri kunnátta en allflestir alþingismenna hafa í dag. og það mín trú að hann og Kristján Júíusson eigi eftir að verða þungaviktar menn í ísl. pólitík á næstu misserum, er taka verður á óstjórn og óráðsíu í rekstri hins opinbera, ekki hefur Ingibjörg Sólrún né Geir  neina burði til þess.


mbl.is Frestun ekki inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

4. júní 2008

Erlend staða þjóðarbúsins

1. ársfjórðungur 2008

Hrein staða við útlönd var neikvæð um 2.211 ma.kr. í lok fyrsta ársf¬jórðungs og versnaði um 628 ma.kr. á ársfjórðungnum. Þessi þróun stafar einkum af veikingu gengis krónunnar, þ.e. hækkun á verði er¬lendra gjaldmiðla um 29,6% samkvæmt gengisskráningarvísitölu sem endurspeglast í samsvarandi hækkun stöðutalna um erlendar eignir og skuldir. Einstakar myntir, t.a.m. evra hækkuðu þó talsvert meira eða um tæplega 33%. Erlendar eignir námu 7.758 ma.kr. í lok ársfjórð¬ungsins en skuldir 9.970 ma.kr.

Næsta birting: 4. september
Smellið til að sjá stærri mynd
Töflur
Lýsigögn
Tímaraðir

Baldur Fjölnisson, 7.6.2008 kl. 21:27

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Ég hélt að ábyrgur frjálshyggjumaður eins og Guðlaugur Þór myndi leita hagrænni leiða heldur en í ofursóun miðstýringarbatterís í lausafjárkreppunni sem plagar heilbrigðisgeirann jafnvel meir en aðra. Við treystum á það að reksturinn verð frekar styrktur og máttur einstaklingsframtaksins virkjaður.

Ívar Pálsson, 7.6.2008 kl. 23:04

3 Smámynd: haraldurhar

Ívar það er nú eins og þú veist hægara að tala en framkvæma,  mér hefur þótt Guðlaugur ekki vera maður stórra ákvarðanna heldur leita eftir hvar fylgi er að finna á undangengnum árum.   Auðvitað á virkja mátt einstaklingframtaksins í heilbrigðisgeiranum. Mín skoðun er sú að stór hluti starfsmanna heilbrigðiskerfisins hafi gengið sjálfala í fjölda ára, og verulega sé áfátt í stjórnun og nýtingu vinnuafls í þeim geira.

haraldurhar, 8.6.2008 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband