22.5.2008 | 22:00
Starfsskyldur borgarfulltrúa.
Fróðleg samantekt um ferðaglegði borgarfulltrúa, og söfnun dagpeninga. Ferðir þessar er að stærstum hluta algjörlega ónauðsinlegar, og virðist eins og samskiptatækni nútímans hafi ekki náð inn í íslenzka stjórnsýslu. Fyrir nokkrum vikum var ráðstefna er varðaði framtíðarskipulag borga haldinn í Kaliforníu, og sóttu hana að ég held þrír borgarstjórnarfulltrúar, sömu viku eða viku síðar var haldin ráðstefna Arkitektafélag Íslands um borgarskipulag, og vakti furðu mína að enginn borgarfulltrúi sá ástæðu til að láta sjá sig á ráðstefnunni né hvað þá heldur sitja hana, í ljósi þessarar staðreyndar þá er hún æ áleitnari spuringinn um starfskyldur borgarfulltrúa hvort þær nái eingunis til ráðstefna og funda erlendis.
Ferðakostnaður borgarfulltrúa 12,2 milljónir í fyrra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.