Guðlaugur Þór með skottið á milli lappana

   Guðlaugur Þór lippast niður.

      Það ég best veit þá var fyrirhugað að færa vaktafyrirkomulag og vinnuskipulag, til samræmis hvíldar og vinnureglum EES, ef svo er og stjórnvöld með Guðlaug Þór í broddi fylkingar, hafa ekki burði til að færa vinnufyrirkomulag á Landspítalum til þess horf stendur þá uppi spurnig í mínum haus hvernig geta stjórnvöld sektað og dregið atvinnubílstjóra fyrir dóm, vegna brota á hvíldarákvæðum.   Það hlítur að vera til einhver jafnræðisregla, og henni verður að hlíta, og þó starfsmenn segi upp, ef á að fara að lögum, verða þeir bara fara heim. Það verður ætið að vera einn skipstjóri á skipinu, en ekki margir eins og virðast vera á Landspítalum.

    Eg hef einning heyrt að fólk ráði sig í hálf starf á Landspítalum, þó það ætli að vinna fullan vinnudag og fái svo greitt fyrir helming vaktarinnar á eftirvinnulaunum, það hljóta allir að sjá svona nokkuð getur ekki gengið, ef rétt er.

   Eftir áratuga reynslu í atvinnurekstri, þá er það mín skoðunn að vilji maður hætta og segir upp atvinnu sinni, er það farsælast fyrir alla bæði atvinnurekandan og verkamanninn, að hann láti af störfum.   Stundum þarf að láta sverfa til stáls.

 


mbl.is Vaktakerfið dregið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Það er nú ekki sanngjarnt að gera Guðlaug Þór ábyrgan fyrir þessari vitleysu sem verið hefur í gangi hjá Landspítlanum. Þessi vitleysa er mikið eldri en ráðherratíð Guðlaugs.

Það hefur ótrúleg vitleysa viðgengist á LSH vegna þekkingarleysis og vanhæfni yfirstjórnar spítalans á heildarumsvifum starfseminnar, sem og vegna asnalegra takmartkana á fjölda stöðugilda við starfsemina, sem samþykkt eru af fjármálaráðuneyti.

Vitleysan minnir á að hópur óvita hafi verið kallaður saman til að stjórna sérmenntuðum faghópi við lausn á vandamálum sem einungis verða leyst á þessum eina stað.

Útkoman er í samræmi við það. 

Guðbjörn Jónsson, 30.4.2008 kl. 23:40

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þegar einstaka ummæli eru lesin á milli línanna sýnist mér að það muni lækka meðallaun hjúkrunarfræðinganna ef ESB-tilskipunin verður tekin upp. En hér er hin úrelta stefna sú að halda grunnlaununum niðrir en láta vakta- og yfirvinnkerfi vinna það upp.

Ef taka á vinnutilskipunina upp þarf ríkið að mínum dómi að gera það án þess að hýrudraga fólk, sem sé, meiri laun á vinnueiningu.

En stefnan er einmitt öfug, að enginn kostnaður aukist heldur minnki frekar en hitt.

Mér finnst vondar fréttir ef enn á að draga lappirnar við að standast vinnutilskipun sem byggir á að auka öryggi sjúklinga.

Að því leyti til er þessi lausn ekki góð. Líf og limir fólks eiga að ganga fyrir.

Ómar Ragnarsson, 30.4.2008 kl. 23:44

3 Smámynd: haraldurhar

   Guðbjörn ég veit nú reyndar að þessi  að Guðlaugur kom ekki á vinnuskipan á Landspítalanum, en er hann sem yfirmaður er búinn að taka ákörðun um breytingu á hann að sjálfsögðu að fylgja henni eftir.  Þegar starfsmaður er búinn að segja upp þá á að leyfa honum að hætta eins og hann á rétt á, en ekki deksta hann til að halda áfram, eins og óþægan krakka.  Eg álít að öll þessi hópstjórnun og teymi og hvað sem þetta heitir leiði alla stjórnun í ógöngur.

   Ómar ég las þetta á milli línana er ég skifaði, nema ég heyrði í útvarpi þetta um hálfdags vinnutímann.  Það sem vakti mig til umhugsunar var ein af kröfum atvinnubílstjóra um breytingu á ákvæði um hvíldartíma, og að þeirra sögn hefði lögreglan gengið hart fram í að sekta þá vegna brota á henni, og datt þar af leiðandi í hug hverning það mætti vera að starfsfólk á skurðstofu sem meðhöndlar líf og limi gæti verið undanþeginn þessu ákvæði, og þá ekki síst með tillltiti til öryggissjónarmiða, en margir hafa geyst hér fram á völlinn og lýst yfir því að algjör nauðsyn sé að bílstjórar virði þessi vökulög, með tillliti til öryggi vegfarenda.

   Eg hef ekki minnstu hugmynd hvort laun þessara starfsmanna er sagt höfðu upp í dag, sé betri eða verri en sambærilegra stétta, en vinnuveitandi á ekki að láta kúga sig til brjóta vinnulögjöf og jafnræðisreglu.  Hef ekki hugmynd hvort átti að hýrudraga starfsfólk, en fyrir mér lítur þetta frekar út að afnema hafi átt einhverja dellur er þarna hefur viðgengist, en allir er ég hef á hlýtt eða ritað um þetta mál finnst mér gera það undir rós.

haraldurhar, 1.5.2008 kl. 00:17

4 identicon

Sumir hjúkrunarfræðingar ráða sig í 50% stöðu því það hentar þeim en fá ekki stundlegan frið vegna óska um að taka aukavaktir. Það er hringt í þá stöðugt, t.d. fyrir klukkan 7 á morgnana, um helgar á jólum o.fl. o fl. Aldrei friður og ef þeir segja nei þá vita þeir að samstarfsfólk þeirra er í verulegum vanda, vinnur jafnvel undir öryggismörkum og eru með bullandi samviskubit. Ég var í 80% vinnu og vildi helst ekki aukavaktir, neyddist þó til að taka ca. 1 vakt á mánuði þ.e. þegar allir aðrir starfsmenn voru búnir að segja nei við vinnu. Ég þekki engan hjúkrunarfræðing sem hefur ráðið sig í 50% og tekur aukavaktir til að fylla upp í.

Hanna (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 02:46

5 identicon

Það er algjör misskilningur að hjfr. ráði sig í lágt starfshlutfall og vinni svo aukavaktir. Fyrir rúmu ári voru allar aukavaktir á landspítalanum og ef ég man rétt var kanski hægt að segja þetta um 4-6 einstaklinga. Flestir sem taka aukavaktir eru í 80-100% vinnu. yfirvinnan er yfirleitt líka tekin til að halda starfseminni gangandi með hagsmuni sjúklinga í huga og líka með samstarfsfólkið í huga því það er ömurlegt að vera á vöktum þar sem þú ert að vinna starf sem ætti að vera í höndum 2 ef ekki fleiri. En svo er annað mál að þar sem við getum ekki lifað á grunnlaununum einum saman verðum við að taka aukna vaktabyrði og aukavaktir til að halda heimilinu gangandi - ofan á 80-100% vaktavinnu!!!

kv hrönn hjfr.

Hrönn (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband