Færsluflokkur: Bloggar

Starfsskyldur borgarfulltrúa.

    Fróðleg samantekt um ferðaglegði borgarfulltrúa, og söfnun dagpeninga.  Ferðir þessar er að stærstum hluta algjörlega ónauðsinlegar, og virðist eins og samskiptatækni nútímans hafi ekki náð inn í íslenzka stjórnsýslu.   Fyrir nokkrum vikum var ráðstefna er varðaði framtíðarskipulag borga haldinn í Kaliforníu, og sóttu hana að ég held þrír borgarstjórnarfulltrúar, sömu viku eða viku síðar var haldin ráðstefna Arkitektafélag Íslands um borgarskipulag, og vakti furðu mína að enginn borgarfulltrúi sá ástæðu til að láta sjá sig á ráðstefnunni né hvað þá heldur sitja hana, í ljósi þessarar staðreyndar þá er hún æ áleitnari spuringinn um starfskyldur borgarfulltrúa hvort þær nái eingunis til ráðstefna og funda erlendis.
mbl.is Ferðakostnaður borgarfulltrúa 12,2 milljónir í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankinn kominn á framfærslu frændþjóðanna.

   Seðlabankinn var í morgunn að fá lánalínu frá frændum okkar á Norðurlöndum, að upphæð 5oo milljóna Evra.  Það fór þá aldrei svo að Davíð kæmist á framfærslu frændþjóðanna.  Líklegast leggur stórn Seðlabankans fram tilllögu um hækkun launa æðstu stjórnenda Seðlabankans fyrir frábæran árangur í að væla út styrkinn.

Ótíðindi fyrir Útlagastjórnina.

   Allt leggst nú á hin versta veg fyrir þjóðina.  Við landsmenn munum líða fyrir að missa  ráðherra og aðrar háttsetta opinbera starfsmenn enn meir úr þjónusu við okkur, ef það verður staðreynd, sem ég vona svo sannarlega ekki að allmenningsflugfélög taka upp á þeim fjanda að minnka við olíugjöfinna, og lengja flugtíma vélanna.   Nægar voru nú fjarvistir þeirra fyrir.

 

 


mbl.is Fljúga hægar og spara eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjúkar sessurnar í ráðherrastólunum

   Já ekki undrar mig að fylgi við Samfylkinguna dragist saman, og ekki hefði ég verið undrandi á meira fylgistapi.  Ingibjörg Sólrún virðist vera algjörlega út á þekju í þessari ríkistjórn, og ekki hafa dug né kjark til að taka á þeim málum er brenna á þjóðinni, heldur beinir kröftum sínum að því virðist í þróunaraðstoð og hernaðarbrölt, svo maður gleymi nú ekki fjáraustrinum og flækingnum vegna framboðs til öryggisráðsin.   Það er ótrúlegt hversu aum og leiðitöm hún hefur verið Sjálfstæðisflokknum, og hefði nokkur trúað að óreyndu að ekki væri búið að taka upp eftirlaunafrumvarpið, dóm mannréttindadómstóls SÞ., skipa pólítíska sendiherra, og láta Árna Matt. troða yfir sig oftar en einu sinni.  Nú horfir hún aðgerðarlaus ásamt Geir hrannast upp óveðurský, og eina sem þau boða er væntanlegar tilllögur sl. átta vikur, skyldi þeim hafa dottið í hug að láta alla stjórnendur og stjórn Seðlabankans taka pokann sinn.

   Læt hér staðar numið, þó af nægu sé að taka, en ég kaus þessa stjórn  í síðustu kostningum, en ekki kæmi mér í hug að kjósa þá aftur, ef fer svo fram sem horfir.

 


mbl.is Fylgi við Samfylkingu og ríkisstjórn minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækka stýrivextina duglega

   Það má eflaust hækka stýrivexti Seðlabankans um ca 25% við næstu ákvörðun, og þá ættu að finnast einhverir áhættufjárfestar erlendis sem eru reiðubúinir að spila svolítið lengur í lottóinu.

   Það skiptir hvort sem engu máli þó stefni hér í stórfellt atvinnuleysi, og fjárhagslegt þrot hjá tugþúsnd fjölskyldna, bara halda verðbólgunni niðri, og passa upp á að laun og eftirlaun Seðlabankastjóra séu tryggð.


mbl.is Má tala krónuna upp?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur Þór er sannkallaður pappakassi.

   Jæja Guðlaugur þór er afar ánægður með samkomulagið er komst á við hjúkrunarfræðinga, það er eins og hann hafi ekki ákveðið að breita þyrftir vinnufyrirkomulagi á Landspítalunum ásamt sínum trúnaðarmönnum hvort sem það var til sparnaðar í rekstri eða til að fullnægja kröfum um hvíldartíma starfsmanna. 

   Mitt mat er það að ekki hafi verið nema tvennt í stöðunni í gær, það var að halda sig við fyrri ákvörðun, eða Guðlaugur Þór játaði að hann hefði farið framúr sér, og sagt stöðu sinni lausri þar sem hann hefði auðljóslega ekki þann styrk né stuðning til að gegna ráðherradómi.


mbl.is Allra vilji að leysa málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur Þór með skottið á milli lappana

   Guðlaugur Þór lippast niður.

      Það ég best veit þá var fyrirhugað að færa vaktafyrirkomulag og vinnuskipulag, til samræmis hvíldar og vinnureglum EES, ef svo er og stjórnvöld með Guðlaug Þór í broddi fylkingar, hafa ekki burði til að færa vinnufyrirkomulag á Landspítalum til þess horf stendur þá uppi spurnig í mínum haus hvernig geta stjórnvöld sektað og dregið atvinnubílstjóra fyrir dóm, vegna brota á hvíldarákvæðum.   Það hlítur að vera til einhver jafnræðisregla, og henni verður að hlíta, og þó starfsmenn segi upp, ef á að fara að lögum, verða þeir bara fara heim. Það verður ætið að vera einn skipstjóri á skipinu, en ekki margir eins og virðast vera á Landspítalum.

    Eg hef einning heyrt að fólk ráði sig í hálf starf á Landspítalum, þó það ætli að vinna fullan vinnudag og fái svo greitt fyrir helming vaktarinnar á eftirvinnulaunum, það hljóta allir að sjá svona nokkuð getur ekki gengið, ef rétt er.

   Eftir áratuga reynslu í atvinnurekstri, þá er það mín skoðunn að vilji maður hætta og segir upp atvinnu sinni, er það farsælast fyrir alla bæði atvinnurekandan og verkamanninn, að hann láti af störfum.   Stundum þarf að láta sverfa til stáls.

 


mbl.is Vaktakerfið dregið til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mógúllinn í Seðalabankanum hefur talað.

   Jæja þó höfum við fengið það staðfest að Mógúllinn í Seðabankanun, hefur gefið sínar tilskipanir til Ríkistjórnar og sauðsvarts allmúans, að nú skal ekkert gert áframhaldandi vaxtaokur, og að sjálfsögðu á ríkið að yfirtaka bankanna, til að koma þeim í allmennilegt eignarhald, en ekki götustráka eins og nú er.
mbl.is Engin rök fyrir örvandi aðgerðum ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlaginn Geir H. Haarde.

 

    Það er erfitt fyrir Geir H. Haarde að gera sér grein fyrir því sem er að gerast hér innanlands, þar sem hann sem forsætisráðherra í útlagastjórninni,  sér sér ekki fært að vera á vettvangi, sökum eindæma ferðagleði sinnar,  er stafar af ótrúlegri eftirspurnar  frá hinum ýmsu þjóðlöndum um nærveru hans, og gefa staðgóð ráð á hinum ýmsu vandamálum er steðja íbúum bæði stórra og smárra ríkja.  

   Það er ofurauðvelt að skilja það að Geir einungis telur að lögreglan hafi brugðist rétt við í dag, en getur því miður ekki sagt okkur brauðstriturum að hún hafi gert það.  Það er von mín að Geir telji sér fært að skjótast heim til upplýsa okkur hvað sé rétt og hvað rangt.   Þá fyrst gerur Ingibjörg haft skoðun á málinu,  og jafnvel rifjast upp fyrir henni hverir kusu hana og á hvaða málefnagrundvelli.

    Eftirlaunafrumvarpið, Seðlabankinn, Mannréttindanefndinn, Árni Mattíssen, Kennarar,  nokkur stikkorð f. Ingibj. í upprifjunni.

 

 


mbl.is Lögregla brást rétt við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorki olía né ópíum.

    Það er ekki nokkur ástæða til að hafa afskipti af Simbabwe, því þar er hvorki olíulindir né ópíumrækt,  þa hefur bandalag frjálsra þjóða  ekkert þangað að sækja eða verja. Eina sem við ættum að hafa áhyggjur af er þessir snillingar er stjórna peningamálunum þar komist af, svo við komust ekki í 1. sætið í vaxtaokri.
mbl.is Óttast þjóðarmorð í Simbabwe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband