Mógúllinn í Seðalabankanum hefur talað.

   Jæja þó höfum við fengið það staðfest að Mógúllinn í Seðabankanun, hefur gefið sínar tilskipanir til Ríkistjórnar og sauðsvarts allmúans, að nú skal ekkert gert áframhaldandi vaxtaokur, og að sjálfsögðu á ríkið að yfirtaka bankanna, til að koma þeim í allmennilegt eignarhald, en ekki götustráka eins og nú er.
mbl.is Engin rök fyrir örvandi aðgerðum ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útlaginn Geir H. Haarde.

 

    Það er erfitt fyrir Geir H. Haarde að gera sér grein fyrir því sem er að gerast hér innanlands, þar sem hann sem forsætisráðherra í útlagastjórninni,  sér sér ekki fært að vera á vettvangi, sökum eindæma ferðagleði sinnar,  er stafar af ótrúlegri eftirspurnar  frá hinum ýmsu þjóðlöndum um nærveru hans, og gefa staðgóð ráð á hinum ýmsu vandamálum er steðja íbúum bæði stórra og smárra ríkja.  

   Það er ofurauðvelt að skilja það að Geir einungis telur að lögreglan hafi brugðist rétt við í dag, en getur því miður ekki sagt okkur brauðstriturum að hún hafi gert það.  Það er von mín að Geir telji sér fært að skjótast heim til upplýsa okkur hvað sé rétt og hvað rangt.   Þá fyrst gerur Ingibjörg haft skoðun á málinu,  og jafnvel rifjast upp fyrir henni hverir kusu hana og á hvaða málefnagrundvelli.

    Eftirlaunafrumvarpið, Seðlabankinn, Mannréttindanefndinn, Árni Mattíssen, Kennarar,  nokkur stikkorð f. Ingibj. í upprifjunni.

 

 


mbl.is Lögregla brást rétt við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorki olía né ópíum.

    Það er ekki nokkur ástæða til að hafa afskipti af Simbabwe, því þar er hvorki olíulindir né ópíumrækt,  þa hefur bandalag frjálsra þjóða  ekkert þangað að sækja eða verja. Eina sem við ættum að hafa áhyggjur af er þessir snillingar er stjórna peningamálunum þar komist af, svo við komust ekki í 1. sætið í vaxtaokri.
mbl.is Óttast þjóðarmorð í Simbabwe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún fyrir hvaða flokk er hún í Ríkisstjórn.?

     Í mínum augur er eins og Ingibjörg Sólrún hafi gengið í björg, er henni tókst að komast í stjórn, og eins og hún hafi gleymt öllum sínum kostningarloforðum, og sé staðföst í að taka algjörlega við hlutverki Framsóknarflokkins við að kokgleypa hvað sem er frá Sjálfstæðisflokknum.

   Hver hefði trúað að ekki væri búið að koma í gegn eftirlaunafrumvarpinu?  Skattleysismörk undir lámarksframfærslu?  Útgjöld til hermála yfir 2 milljarða.  Ráðherrar og þingmenn á sífelldum flækingi? Árni Mattísen látinn komast upp með embættisafglöp.  Halldór Blöndal og Hannes Hólmsteinn í stjórn Seðlabankans.  Landsvirkjun látinn starfa sem ríki í ríkinu.  Framboð til setu í öryggisráðinu? Fjáraustri haldið áfram sem alldrei fyrr í Utanríkiþjónustunni, og fram haldið að skipa uppgjafa póltíkusa í sendiherrastöður.  Fiskveiðistjórnunarkerfið ekki tekið til algjörar endurskoðunar. Mánaðarlaun kennara undir 2000 evrum.  Stuðningur við okurvaxtastefnu Seðlabankans, og hafa ekki hreinsað út stjórn og stjórnendur Seðlabankans.  Fyrirsjáanlegt kjararýrnun, og stórfellt atvinnuleysi.  

   Hér er einungis tæpt að nokkrum atriðum, og í mínum huga er hvert eitt og sér næg ástæða að Ingibjörg ætti að fara hyggja að stóli Sendiherra, fremur en að leiða stjórnmálaflokk.

 

 


Aðalþrjórturinn fundinn.

    Davíð Oddson Seðalabankastjóri auk Geirs og Sollu hafa verið að lýsa yfir árásum á ísl. efnahagslíf, og bennt þar á  bankanna og áhættusjóði, sem gerendur í að fella gengi ísl. kr.kr, og hótað Interpool og fjármálaeftirliti í rannsókn á gerðum þeirra.  Nú kemur í ljós að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur verið fremstur í flokki þeirra er telja kr. ofmetna, og sé ég ekki annað en Ríkilögreglustjóri auk Interpool þurfi að rannsaka gerðir þeirra.  Ættum við nú ekki bara segja okkur úr þessum samtökum?

    Dýralæknirinn birti í gær framtíðarspá sína fyrir gengis vísitölu kr. er er um 115, væri nú nær að spákaupmenn og aðrir braskarar færu að ráði hans og tækju stöðu með kr. og nytu hina afburðagóðu vaxtakjara er eru í boði hjá Davíð.


mbl.is Spákaupmenn sitja á 800 milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð hækkar aftur kl. 11

   Davíð hækkar aftur vextina kl. 11, þar sem síðasta hækkun dugir ekki til þess að neinn vilji eiga ísl.kr.   Nú verður ríkistjórninn að taka í taumanna, og ekki kemst Geir lengur um að halda fréttamannafundi um ekki neitt.
mbl.is Seðlabankinn hækkar stýrivexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugstöð Leifs Eiríkssonar. stoppistöð ráðherra og alþingismanna.

   Hefur dottið í hug til að nýta tíma ráðherra og þingmanna betur að þeir hafi fasta viðtalstíma þar fyrir kjósendur sína, er þeir millilenda á Flugstöinni.  Það virðist ekki skorta gjaldeyrir til að standa undir flækingi þeirra.
mbl.is Nafnabrengl í fréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð og óprúttnu strákarnir.

    Davíð virðist vera gjörsamlega óskiljanlegt að ísl. kr. sem er minnsti sjálfstæði gjaldmiðill í heimi, sé tilvalinn í carrytrade, og ekki nema fullkomlega eðlilegt að menn taki stöðu með og á móti þessum töfragjaldmiðli, þar að auki með einna hæstu stýrivexti í heimi.

   Það að ljúga að öðrum er ljótur vani, að ljúga að sjálfum sér er hvers manns bani.  Sagði Davíð í dag, og leggi svo hver út fyrir sig orð hans.  Það á ekki að fara út í bæ til að leita að óprúttnum miðlurum, heldur ætti Alþingi Íslands þegar í stað að setja Seðlabankanum nýja stjórn, og skipa einn Seðalbankastjóra er hefur til þess mennun og kunnáttu í stjórn peningamála.

   Það ætti öllum að vera ljóst að núverandi stjórnendur Seðabankans ráða ekki við verkefnið er þeim falið að gegna.

  


mbl.is Reynt að brjóta fjármálakerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn á flækingi um heiminn.

   Það er dæmalaus ósvífni að hálfu Björns Bjarnasonar, og finna sér tilefni til utanferðar í hvert sinni er tveir hundar hittast..   Hann er farinn að minna verulega á Pál Pétursson í lok ráðherratíðar sinnar, ætli það séu dagpeningar, er lokka hann.??

   Það að fara suður til Chile, og vera viðstaddur þegar kjölur er lagður að varðskipi, sýnir mér best hvert tilefnið er smátt, en eins og flestir vita er skipið smíðað í bútum og síðan raðað saman, og aldrei lagður kjölur, gæti verið hann hefði fengið að sjá botstokka í einni einigunni, ekki ósennilegt hann þurfi að fara einning er fundamentið fyrir aðalvélina veruð soðið á botnstokkana.

   Það að vera eyða allmannafé í svona fánýti, er ábyrðarhlutur, og ekki síst í ljósi þess, að nú sjá margir kjósendur hanns fram á erfiða tíma, og væri nú æskilegra að ráðherran og þingmaðurinn væri til staðar hér heim, og sýndi ráðdeild eins og mig mynnir að hann hafi stundum verið að boða, þessi ferð mynnir mig á sl. sumar þegar hann var að skoða og meta ágæti flugvela ásamt Tómasi Inga, á flugsýningunni í París í fyrra.

    Skipasmíðastöðinn í Chile er í umsjá hersins í Chile, og hefur Björn örugglega hitt þar fyrir reynslubolta í öryggismálum og landvörnum, og ekki má gleyma hæfileikum þeirra til til að ná til íbúa landsins er taldir eru  líklegir til brota geng valdstjórninni.

   Björn sjáðu sóma þinn að halda þig heima það sem er eftir að setu þinni í ráðherrastóli.


mbl.is Kjölur lagður að varðskipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa bankarnir verið að taka stöðu á móti kr.

    Það hefur verið orðrómur að ísl. bankarnir hafi verið að taka stöðu á móti ísl. kr. síðustu daga. Það eitt og sér verkur ekki undrun mina, heldur það hversu kr. hefur haldið lengi í þessari fjármálaþrengingum.   Það hlítur að koma sá tími fljótlega að ráðamenn þjóðarinnar, geri sér grein fyrir því að ekki er hægt að halda upp hagsæld með vaxtaokri, og skuldasöfnun erlendis.

    Vaxtastefna Seðlabankans hefur verið glórulaus, að halda menn geti haldið verðbólgu niðri, með því að stunda carrytrade.


mbl.is Krónan veiktist um 1,56% í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband