Jóhann sýslumaður á hálum ís.

     Ríkissjóður hlítur að vera baka sér fjárhagslega ábyrgð, með því að innsigla bátinn, ef allur búnaður bátsins og haffærisskýrteini erum í lagi, þá get ég ekki séð að báturinn hafi gert neitt af sér, ef viðkomandi sjómaður hefur brotið af sér, hefði mér þótt eðlilegra að hann væri hneptur í gæsluvarðhald, og síðan dæmt í hans máli eins og lög landsins gera ráð fyrir.

     Ríkilögreglustjóri og Sýslumaðurinn í Keflavík eru öruglega á mjög gráu svæði í gerðum sínum, og hafa skal í huga þau gömlu spakmæli, að með lögum skal land byggja, og ólögum eyða.


mbl.is Bátur Ásmundar innsiglaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DEcode stórbætt afkoma og auknar rekstartekjur.

   Eins og kemur fram í uppgjöri f. annan ársfjórðung að rekstartekjur þeirra stóraukist og námu 16.2 milljónum US$ en voru 7.6 m.US$ á þessum ársfj. sl. ár.  Sala á deCODEme virðist hafa gengið vel.  Stjórnunar og rannsókarkostnaður ver lækkandi.  Heyrst hefur að erl. líftæknifyrirtækið Illumina  hafi sýnt áhuga á kaupum á Decode.

   Það vekur sífellt undrun mína hversu neikvæð umræðan er um félagið, og er eins og enginn ísl. stjórnmálamaður hafi haft kjark til að taka málstað þess né styðja það í sinni stórmerku starfsemi, og hafa þeir margir hvejir fylgt sér í flokk hælbíta þess.  Eini ísl. embættismaðurinn er hefur verið ötull til að sýna og kynna fyrirtækið f. erl. ráðamönnum virðist mér vera Herra Ólafur Ragnar, og er skemmst að mynnast að gestir hans eins og Friðrik kóngsprins, sendinefnd frá Kadar, og nú síðast Marta St. var sýnd og kynnt starfsemi Decode.

   Mitt álit er að Decode sé langmerkasta fyrirtæki landsins er við ættum öll að vera stolt af.


mbl.is Tap á reksti deCODE eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innlend verðmætasköpun.

    Eg geri þá kröfu til greiningdeildar Glitnirs, að þeir ekki einungis greini okkur frá auknum álútflutingi, heldur upplýsi okkur hver sé ávinningur þjóðarbúsins af álframleiðslunni.  Það sem ég óska eftir að fá upplýst er eftirfarandi heildar orkusala, greidd laun, skattar til ríkis og bæja, auk aðrar þjónusutekjur er við fáum af álframleiðslunni.  Helst brotið niður á framleitt tonn.  Það segir mér nánast ekki neitt hve mikið er flutt út,  hækkun á hráefnis fragtar eða aukinn hagnaður álframleiðanda kemur okkur slétt  ekkert við.
mbl.is Verðmæti álútflutnings 17,7 milljarðar í maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun í kortunum.

    Spái því að líterinn af benzíni verði yfir 200 strax í næstu viku.  Heimsmarkaðsverð á Brent hækkar um  5.8o og er við að brjóta 140 dollara tunnuna:  Light  hækkar um 5.30.  Svo við sjáum okkar sæng útbreidda ef fer sem horfir.
mbl.is Verð á eldsneyti lækkar um 2 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórtíðindi Kaupþings.

    Þessi lántaka er stórtíðindi, og sýnir okkur hversu öflugir menn koma að stjórnun Kaupþings, ekki væri hissa á að Ólafur Ragnar ætti þarna einhvern hlut að máli.  Hvenær verður Davíð ljóst að hann veldur ekki starfinu sem hann gegnir?
mbl.is Kaupþing fær milljarða að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkavæða Veðurstofuna.

   Væri ekki nær að einkavæða Veðurstofuna, heldur en vera hringla með hana og starfsmenn hennar og það hjá Þórunni ráðalausu,´ísbjarnarbana, sé bara ekkert því til fyrirstöðu
mbl.is Embætti forstjóra Veðurstofu Íslands laust til umsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögbann á flugumferðarstjóra

    Ríkistjórninn hlýtur að gefa út bráðabirgðalög og leggja lögbann á boðaðar aðgerðir flugumferðastjóra,  öllum hlítur að vera ljóst er flugfélög og ferðaþjónusta berjast í bökkum við að ná endum saman, og svo maður tali nú ekki um gjaldeyrisskorinn, þá á ekki að líða að einstakir forréttindahópar geti skaðað samfélagið okkar í krafti félagavalds.   Mín skoðun er sú að annaðhvort eru menn í verkfalli og leggja því alveg niður vinnu, eða segja upp og fara til starfa þar sem kunnátta þeirra er metinn að verðleikum.   Það hlítur að vera til umhugsunar að leita eftir erlendum starfsmönnu til fugumferðarstjórnar,  er geta sætt sig við þau kjör er hér eru í boði.
mbl.is Mikil röskun á flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgjaldaaukning hjá Útlagastjórninni.

    Þessi leiðrétting á genginu á ekki að koma neinum á óvart og henni er ekki lokið.  Áhættufjárfestar eru hættir að trade hana, og sjá að ísl. okurvextirnir nægja ekki lengur til að halda henni rangt skráðri.  Það sem veldur mér mestum áhyggjum að kostnaðarauki vegna útlagastjórnarinnar aukast gríðalega, og gæti svo farið ef fram heldur sem horfir að ráðherrar okkar neyðist til að hafa meiri viðveru hér á landi.  Davíð hlítur að hækka stýrivexti upp í 30% í von um að einhverir aular álpist til að taka stöðu með krónunni.
mbl.is Gengi krónunnar aldrei lægra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt af afrekum Dr. Gunnars

     Það hefur verið ljóst til fjölda ára að fiskur var undir steini varðandi úthlutun og uppbyggingu á svokölluðum Lundarreit, og einhvertíma hlítur að koma að því að Dr. Gunnar verði látinn segja frá hverning staðið var að þeim málum.  Athyglisvert var verðlagninginn á byggingarreitnum, ekkki síst í ljósi þess hve Gunnar var reiðubúinn að greiða fyrir hesthúsahverfið.   Það má öllum vera ljóst að eitt mesta skipulagsklúður er sést hefur á seinni árum, á sér stað ´þarna við Nýbýlaveginn, og fróðlegt veruður að sjá hver verður látinn sæta ábyrgð í því máli.  Ekki er að furða að byggingarverktakar hafi kjörið stjórnvöld í Kópavogi, þá hæfustu í samskiptum.
mbl.is Kópavogur bregst við óánægju íbúa við Lundarbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villi plottar, en Ólafur ákveður.

    Ekki veit ég betur en í samningi Vilhálms og Ólafs um meirihlutasamstarf, hafi verið ákvæði í samningnum þeirra á milli, að Viljálmur tæki við Ólafi sem borgarstjóri í marz á næsta ári, og því er ekki sjálgefið að Hanna Birna verði nokkurn tíma Borgarstjóri, hlítur að vera í ákörðun hvort  Ólafs hvort hann siti nú ekki bara til loka stjórnartímabilsins

   Þegar Halldór Ásgrímsson gafst upp sem forsætisráðherra, þá tók ekki við félagi hans úr framsókarflokknum eins og eðlilegt hefði verið. svo fordæmið höfum við að samningar virðast standa um persónur en ekki flokk er kemur að samkomulagi um meirihlutasamstarf


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband